English

Innleiðingarstefna



Tilgangur
Tilgangur þessarar innleiðingarstefnu er að vera öryggisstefnu Verðbréfaskráninar Íslands til stuðnings. Með innleiðingu nýrra kerfa er átt við það ferli að ákvarða nýtt kerfi, prófun, uppsetningu og þjálfun starfsmanna í notkun þess. Innleiðing og framkvæmd þessarar stefnu er mikilvæg til að fullvissa starfsmenn Verðbréfaskráningar Íslands og viðskptavini um heilindi, rétt og markviss vinnubrögð í rekstri fyrirtækisins.

 Umfang
Innleiðingarstefnan tekur til ákvarðanna, prófana og uppsetningar nýrra kerfa hjá Verðbréfaskráningu Íslands.

 Markmið
Það er stefna Verðbréfaskráningar Íslands að við innleiðingu nýrra kerfa verði notaðar staðlaðar aðferðir og ferli, til að minnka hættu á óhöppum og til að auka gæði daglegrar starfsemi.

 Leiðir að markmiði
Starfsmenn Verðbréfaskráningar munu ávallt reyna að velja ný kerfi af kostgæfni. Prófanir skulu vera eins ýtarlegar og hægt er. Ávalt skal setja upp ný kerfi í test/prófunar umhverfi áður en það er sett upp í raunumhverfi. Starfsmenn skulu fá þá þjálfun sem nauðsynleg er til að reka hið nýja kerfi.

 Ábyrgð
Framkvæmdastjóri Verðbréfaskráningar Íslands ber ábyrgð á innleiðingarstefnu þessari og endurskoðar hana reglulega.

 Endurskoðun
Þessi stefna er endurskoðuð árlega og oftar ef þörf krefur til þess að tryggja að hún samrýmist markmiðum með rekstri Verðbréfaskráningar Íslands.

 Samþykki
Innleiðingarstefna þessi er samþykkt af framkvæmdastjóra Verðbréfaskráningar Íslands.

Reykjavík, 29. september 2008

F.h. Verðbréfaskráningar Íslands

 Einar S. Sigurjónsson, framkvæmdastjóri

 Viðaukar
Aðrar stefnur sem styðja innleiðingarstefnuna

a.    Öryggisstefna, varðandi fylgni við ISO 27001:2005.
b.    Aðgangsstefna, varðandi aðgang að gögnum og kerfum.
c.    Gæðastefna, varðandi fylgni við ÍST EN ISO 9001:2000

 Yfirlit yfir lög og reglur.
Yfirlit yfir lög, reglur og reglugerðir sem gilda um starfsemi Verðbréfaskráningar Íslands er birt í skjölum hér.