Almennt um kerfi VS
Verðbréfaskráning íslands (VS) rekur eigin upplýsingadeild sem heldur utan um tölvumál fyrirtækisins.
Aðal kerfi VS keyrir á IBM i5 netþjóni og heitir Equator.
Equator heldur utan um vörslu, breytingar og uppgjör á þeim rafrænu bréfum sem hýst eru í kerfum VS. Hægt er, fyrir reikningsstofnanir, að fá aðgang að kerfum VS gegn gjaldi.
Trade Reporting system (TRS) er kerfi tengt Equator. TRS sér um að para saman viðskipti sem reikningsstofnanir senda inn til VS. Þegar pörun hefur gengið eðlilega sendir TRS viðskiptin áfram til Equator sem gerir viðskiptin upp.
Hlutafélagakerfi VS geymir upplýsingar um skráð hlutafélög hjá VS og eigendur þeirra. Hlutafélög geta fengið aðgang að upplýsingum um eigin bréf gegn gjaldi.