Uppfærsla á Equator
20. maí 2012 - 12:46:35
Helgina 19 - 20 mai verður Equator hugbúnaður hjá Verðbréfaskráningu Íslands uppfærður.
Farið verður frá útgáfu 4.0 í útgáfu 4.3. Er þetta í fyrsta sinn sem Equator hugbúnaðurinn er uppfærður um útgáfu frá því að hann var tekinn í notkun árið 2000.
Um leið verður tekinn í notkun ný IBM system i vél sem keyrir Equator.
Ef þið lendið í vandræðum með innskráningu vinsamlega hafið samband við okkur í síma 540 5515.