Nýr samningur hefur verið gerður milli Verðbréfaskráningar Íslands hf. og Seðlabanka Íslands um framkvæmd verðbréfauppgjörs með rafræn verðbréf. Samningurinn kemur í stað þess sem gerður var milli sömu aðila á árinu 2000. Samningurinn tekur gildi 21. September n.k. og færist þá uppgjörstími verðbréfa hjá Verðbréfaskráningu til 12.00 á hádegi í stað 9.00 árdegis. Þessi breyting er gerð í samráði við helstu aðila markaðarins til að auðvelda aðgang erlendra fjárfesta, aðlaga íslenska verðbréfauppgjörið að því sem tíðkast í flestum nágranna ríkjum okkar og til að draga úr áhættu við verðbréfauppgjörið. Verklagsreglur um uppgjörið sem er hluti af samningnum eru birtar hér
Samninginn sjálfan má sækja hér.