English

Breyting á réttindadegi

18.9.2009

Verðbréfaskráning vill koma á framfæri eftirfarandi upplýsingum.  Við breytingu á uppgjörstíma verðbréfa þann 21. September frá kl. 9.00 til hádegis eða 12.00,  þarf að breyta viðmiði um réttindi tengdum rafbréfum gefnum út hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. 

Frá og með 21. September ákvarðast réttindi miðað við eigendaskráningu hjá Verðbréfaskráningu í lok dags sem réttindi miðast við.  Réttindadagur vegna skuldabréfa er því í lok síðasta  bankadags daginn fyrir gjalddaga, afborgana og vaxta.  Réttindadagur hlutabréfa er ákvarðaður af viðkomandi félagi.